Prentað þann 14. mars 2025
954/2008
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 584/2001, um úrræði til að bregðast við greiðsluvanda vegna lána Íbúðalánasjóðs.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsliður sem verður svohljóðandi: Úrræðum samkvæmt reglugerð þessari verður einnig beitt til að bregðast við greiðsluvanda lántakanda lána sem Íbúðalánasjóður hefur yfirtekið af fjármálastofnunum á grundvelli 2. mgr. 15. gr. laga nr. 44/1998, um húsnæðismál.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. reglugerðarinnar:
- Á eftir 1. málsl. 1. mgr. 10. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsliður sem orðast svo: Einnig er heimilt að fresta greiðslum afborgana af höfuðstól þannig að eingöngu séu greiddir vextir og verðbætur af vöxtum.
- Við 3. mgr. 10. gr. bætist nýr málsliður sem orðast svo: Skilmálabreyting tekur gildi þegar þinglýstur viðauki hefur borist Íbúðalánasjóði.
3. gr.
Reglugerð þessi sem sett er með stoð í 7. mgr. 48. gr. laga nr. 44/1998, um húsnæðismál, öðlast þegar gildi.
Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 15. október 2008.
Jóhanna Sigurðardóttir.
Ágúst Geir Ágústsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.