Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

946/2014

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 415/2014 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna.

1. gr.

Við 1. gr. bætist nýr stafliður, h-liður, sem orðast svo:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 487/2013 frá 8. maí 2013 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna í því skyni að laga reglugerðina að framförum í tækni og vísindum, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 124/2014, þann 27. júní 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 25. september 2014, 2014/EES/54/45, bls. 390-448.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á reglugerð (ESB) nr. 487/2013 frá 8. maí 2013 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna í því skyni að laga reglugerðina að tæknilegum og vísindalegum framförum.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. tölul. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 22. október 2014.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.