Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

942/2014

Reglugerð um veitingu heimildar til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli.

1. gr.

Með reglugerð þessari er kveðið á um skilyrði fyrir veitingu heimildar til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í starfrækslugjaldmiðli sem er annar en íslensk króna.

2. gr. Skilyrði heimildar.

Ársreikningaskrá veitir heimild til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli, sbr. 8. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, enda teljist hann vera starfrækslugjaldmiðill skv. 3. gr. Heimildin nær til félaga sem ber að semja ársreikninga sína samkvæmt lögum nr. 3/2006.

3. gr. Starfrækslugjaldmiðill.

Starfrækslugjaldmiðill er sá gjaldmiðill sem vegur hlutfallslega mest í aðalefnahagsumhverfi félagsins. Aðalefnahagsumhverfið er þar sem félagið aðallega myndar og notar handbært fé. Við mat starfrækslugjaldmiðils skal litið til þess gjaldmiðils sem tekjur og gjöld af rekstrarhreyfingum eru ákvörðuð og greidd í enda sé það sá gjaldmiðill sem mest áhrif hefur á kostnaðarverð og söluverð vara og þjónustu félagsins, m.a. fyrir tilstilli samkeppnisafla, laga og reglna. Þá skal einnig litið til þeirra gjaldmiðla sem mestu varða við fjármögnun félagsins og varðveislu fjármuna þess.

Við mat á því í hvaða gjaldmiðli meginhluti viðskipta fer fram, skal litið heildstætt til tekna, gjalda, eigna, skulda og annarra viðskiptalegra þátta í rekstri viðkomandi félags.

Starfrækslugjaldmiðill skal vera skráður hjá Seðlabanka Íslands eða viðskiptabanka félagsins hér á landi.

4. gr. Umsókn.

Umsókn um heimild til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli skal berast ársreikningaskrá tveimur mánuðum fyrir upphaf viðkomandi reikningsárs.

Félög, sem stofnuð eru á árinu, skulu leggja fram umsókn eigi síðar en tveimur mánuðum eftir stofnun þeirra ásamt rökstuðningi um að starfsemi þeirra muni uppfylla ákvæði 2. gr. Að loknu fyrsta starfsári slíks félags skal það senda ársreikningaskrá upplýsingar sem sýna fram á að starfsemi þess hafi uppfyllt ákvæði 2. gr.

Nú sækir fjármálafyrirtæki sem skilgreint er sem lánastofnun samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki um heimild til bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli og skal þá ársreikningaskrá leita umsagnar Seðlabanka Íslands um umsóknina.

Félag, sem fengið hefur heimild til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli skal viðhalda þeirri aðferð í a.m.k. fimm ár nema það uppfylli ekki lengur skilyrði 2. gr.

Telji félag sig ekki lengur uppfylla skilyrði 2. gr. ber því að tilkynna ársreikningaskrá um það. Að fenginni heimild ársreikningaskrár skal það færa bókhald sitt og semja ársreikning í íslenskum krónum miðað við næsta reikningsár.

5. gr. Eftirlit ársreikningaskrár.

Ársreikningaskrá skal hafa eftirlit með því að félög, sem fengið hafa heimild skv. 4. gr., uppfylli skilyrði 2. gr., sbr. 117. gr. laga nr. 3/2006.

Uppfylli félag ekki skilyrði 2. gr. skal ársreikningaskrá afturkalla heimild til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli við upphaf næsta reikningsárs. Ársreikningaskrá getur veitt félagi frest í tvö reikningsár telji hún ástandið tímabundið.

Ársreikningaskrá er heimilt að krefja félög, sem fengið hafa heimild skv. 4. gr., um upplýsingar um starfsemi þeirra og um vægi einstakra gjaldmiðla í því sambandi.

6. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 4. mgr. 8. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Við gildistöku reglugerðar þessarar fellur úr gildi reglugerð nr. 101/2007 um veitingu heimildar til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. október 2014.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Harpa Theodórsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.