Fara beint í efnið

Prentað þann 24. nóv. 2024

Breytingareglugerð

929/2019

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 900/2018 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470 um að koma á fót skrá Sambandsins yfir nýfæði í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 um nýfæði.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast 4 nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/387 frá 11. mars 2019 um leyfi fyrir rýmkun á notkun á olíu úr Schizochytrium sp. (ATCC PTA-9695) sem nýfæði og breytingu á heitinu olíu úr Schizochytrium sp. (ATCC PTA-9695) og sértækum kröfum um merkingu þess samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 184/2019, frá 10. júlí 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 58, frá 18. júlí 2019, bls. 62.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/388 frá 11. mars 2019 um leyfi til að breyta nákvæmum skilgreiningum á nýfæðinu 2´-fúkósýllaktósa, sem er framleiddur með Escherichia coli K-12, samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 184/2019, frá 10. júlí 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 58, frá 18. júlí 2019, bls. 66.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/456 frá 20. mars 2019 um leyfi til að breyta nákvæmum skilgreiningum á nýfæðinu kóríanderolíu úr fræi Coriandrum sativum samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn nr. 184/2019, frá 10. júlí 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 58, frá 18. júlí 2019, bls. 70.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/506 frá 26. mars 2019 um leyfi til að setja á markað D-ríbósa sem nýfæði samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 184/2019, frá 10. júlí 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 58, frá 18. júlí 2019, bls. 73.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 27. september 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.