Prentað þann 22. des. 2024
922/2021
Reglugerð um sérstaka úthlutun til skel- og rækjubáta.
1. gr.
Þar sem takmarkaðar rækjuveiðar voru stundaðar í Ísafjarðardjúpi og Arnarfirði og engar rækjuveiðar voru stundaðar á Húnaflóa, Skagafirði, Skjálfanda, Öxarfirði og Norðurfjörðum Breiðafjarðar á fiskveiðiárinu 2020/2021, og á Eldeyjarsvæði almanaksárið 2020, skal á fiskveiðiárinu 2021/2022 úthluta aflamarki sem nemur samtals 869 þorskígildistonnum til báta, sem hafa hlutdeild í rækju á áðurgreindum svæðum.
Við útreikning uppbóta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla rækjuvertíðanna 1996/1997 - 2005/2006 að frádregnum rækjuafla fiskveiðiársins 2020/2021 á viðkomandi svæði. Verðmætastuðullinn fyrir rækju er 0,52, miðað við þorskígildi og koma 140 þorskígildistonn í hlut báta frá Arnarfirði, 120 þorskígildistonn í hlut báta í Ísafjarðardjúpi, 148 þorskígildistonn í hlut báta við Húnaflóa, 153 þorskígildistonn í hlut báta við Skagafjörð, 70 þorskígildistonn í hlut báta á Skjálfanda, 201 þorskígildislest í hlut báta við Öxarfjörð, 23 þorskígildistonn í hlut báta á Eldeyjarsvæði og 14 þorskígildistonn í hlut báts í Norðurfjörðum Breiðafjarðar.
2. gr.
Þar sem engar hörpudisksveiðar voru stundaðar í Arnarfirði, Húnaflóa, Breiðafirði og Hvalfirði á fiskveiðárinu 2020/2021 skal á fiskveiðiárinu 2021/2022 úthluta aflamarki sem samtals nemur 983 þorskígildistonnum til báta, sem aflahlutdeild hafa í hörpudiski á áðurgreindum svæðum.
Við útreikning uppbóta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla áranna 1998 til 2007. Verðmætastuðullinn fyrir hörpudisk er 0,32, miðað við þorskígildi, og koma 7 þorskígildistonn í hlut báta frá Arnarfirði, 33 þorskígildistonn í hlut báta við Húnaflóa, 919 þorskígildistonn í hlut báta við Breiðafjörð og 24 þorskígildistonn í hlut báta við Hvalfjörð.
3. gr.
Úthluta skal uppbótum til einstakra báta á grundvelli þeirrar aflahlutdeildar sem þeir hafa í rækju og skel á viðkomandi svæði og miðast við aflahlutdeild eins og hún er 1. ágúst 2021. Uppbæturnar skulu skiptast á eftirgreindar tegundir: Þorsk, ýsu, ufsa, steinbít, gullkarfa, keilu og löngu samkvæmt eftirfarandi töflu:
Tegundir | Tonn upp úr sjó | Þorskígildistonn |
Þorskur | 1.472 | 1.237 |
Ýsa | 275 | 208 |
Ufsi | 517 | 239 |
Steinbítur | 60 | 27 |
Gullkarfi | 191 | 128 |
Keila | 10 | 3 |
Langa | 24 | 10 |
Samtals: | 2.549 | 1.852 |
4. gr.
Reglugerð þessi er sett, skv. 3. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, til að öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda 1. september 2020. Jafnframt fellur reglugerð nr. 730/2020, um sérstaka úthlutun til skel- og rækjubáta úr gildi frá 1. september 2021.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. ágúst 2021.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.