Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

911/2017

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1200/2016, um húsnæðisbætur, með síðari breytingum.

1. gr.

Í stað orðsins "Vinnumálastofnun" í 1. mgr. 2. gr., 1. mgr. 3. gr., tvívegis í 1. mgr. 4. gr., 1., 2. og tvívegis í 3. mgr. 5. gr., 15. tölul. 6. gr., 1., 2. og 9. tölul. 7. gr., 1. og 2. mgr. 8. gr., 1., 2., tvívegis í 3. og 4. mgr. 9. gr. sem og í fyrirsögn þeirrar greinar, 10. gr., 1. og 2. mgr. 11. gr., 1., 2., 3., þrívegis í 4. og 5. mgr. 17. gr., 1., 2. og þrívegis í 3. mgr. 18. gr., 1., 2. og 3. mgr. 20. gr., tvívegis í 1. mgr. og 2. mgr. 21. gr. og þrívegis í 1. mgr., 2. og 3. mgr. 22. gr. reglugerðarinnar kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Íbúðalánasjóður.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 1. tölul. 1. mgr. 30. gr. laga um húsnæðisbætur, nr. 75/2016, öðlast gildi 1. janúar 2018.

Velferðarráðuneytinu, 17. október 2017.

Þorsteinn Víglundsson
félags- og jafnréttismálaráðherra.

Ágúst Þór Sigurðsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.