Prentað þann 29. des. 2024
Breytingareglugerð
911/2016
Reglugerð um (8.) breytingu á reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast þrír nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/107 frá 27. janúar 2016 um að samþykkja ekki sýbútrín sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 21, sem vísað er til í tl. 12zzzd, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 84/2016, þann 29. apríl 2016. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 18. ágúst 2016, bls. 207-208.
- Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/108 frá 27. janúar 2016 um að samþykkja ekki 2-bútanon, peroxíð sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 1 og 2, sem vísað er til í tl. 12zzze, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 84/2016, þann 29. apríl 2016. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 18. ágúst 2016, bls. 209.
- Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/109 frá 27. janúar 2016 um að samþykkja ekki PHMB (1600; 1.8) sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 1, 6 og 9, sem vísað er til í tl. 12zzzf, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 84/2016, þann 29. apríl 2016. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 18. ágúst 2016, bls. 210-211.
2. gr.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirfarandi EES-gerðum:
- Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/107 frá 27. janúar 2016 um að samþykkja ekki sýbútrín sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 21.
- Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/108 frá 27. janúar 2016 um að samþykkja ekki 2-bútanon, peroxíð sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 1 og 2.
- Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/109 frá 27. janúar 2016 um að samþykkja ekki PHMB (1600; 1.8) sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 1, 6 og 9.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013 og öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 20. október 2016.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.