Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 25. apríl 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 15. okt. 2014 – 1. nóv. 2014 Sjá núgildandi

907/2014

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 206/2010 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra, þaðan sem leyfður er aðflutningur á tilteknum dýrum og nýju kjöti til Evrópusambandsins, og um kröfur varðandi heilbrigðisvottorð fyrir dýr og dýraafurðir.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. og II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 26. október 2007, öðlast eftirfarandi ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 206/2010 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra, þaðan sem leyfður er aðflutningur á tilteknum dýrum og nýju kjöti til Evrópusambandsins, og um kröfur varðandi heilbrigðisvottorð fyrir dýr og dýraafurðir.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 144/2011 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 206/2010 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra, þaðan sem leyfður er aðflutningur á tilteknum dýrum og nýju kjöti til Evrópusambandsins, og um kröfur varðandi heilbrigðisvottorð fyrir dýr og dýraafurðir.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 342/2011 um breytingu á II. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 206/2010 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra, þaðan sem leyfður er aðflutningur á tilteknum dýrum og nýju kjöti til Evrópusambandsins, og um kröfur varðandi heilbrigðisvottorð fyrir dýr og dýraafurðir.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 801/2011 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 206/2010 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra, þaðan sem leyfður er aðflutningur á tilteknum dýrum og nýju kjöti til Evrópusambandsins, og um kröfur varðandi heilbrigðisvottorð fyrir dýr og dýraafurðir.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1112/2011 um breytingu á II. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 206/2010 að því er varðar færsluna fyrir Paragvæ í skránni yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra, þaðan sem leyfður er aðflutningur á tilteknu nýju kjöti til Evrópusambandsins.
  6. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 497/2012 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 206/2010 að því er varðar kröfur vegna innflutnings á dýrum sem eru smitnæm fyrir blátungu.
  7. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 546/2012 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 206/2010 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra, þaðan sem leyfður er aðflutningur á tilteknum dýrum og nýju kjöti til Evrópusambandsins, og um kröfur varðandi heilbrigðisvottorð fyrir dýr og dýraafurðir.
  8. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 644/2012 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 206/2010 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra, þaðan sem leyfður er aðflutningur á tilteknum dýrum og nýju kjöti til Evrópusambandsins, og um kröfur varðandi heilbrigðisvottorð fyrir dýr og dýraafurðir, að því er varðar Rússland.
  9. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1036/2012 um breytingu á II. viðauka við ákvörðun 2007/777/EB og II. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 206/2010 að því er varðar færslurnar fyrir Króatíu í skránum yfir þriðju lönd eða hluta þeirra þaðan sem leyfður er aðflutningur á nýju kjöti og tilteknum kjötafurðum til Sambandsins.
  10. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1160/2012 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 206/2010 að því er varðar fyrirmynd að heilbrigðisvottorði fyrir tamda nautgripi til umflutnings gegnum yfirráðasvæði Litháens frá Kaliningrad-svæðinu til annarra svæða í Rússlandi.
  11. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 71/2013 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 206/2010 að því er varðar færsluna fyrir Úrúgvæ í skránni yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra, þaðan sem leyfður er aðflutningur á nýju kjöti til Sambandsins, og um leiðréttingu á þeirri reglugerð að því er varðar fyrirmyndina að heilbrigðisvottorði fyrir sauðfé og geitur til undaneldis eða framleiðslu eftir innflutning.
  12. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 102/2013 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 206/2010 að því er varðar færsluna fyrir Bandaríkin í skránni yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra, þaðan sem leyfður er aðflutningur á hóf- og klaufdýrum á fæti til Sambandsins, fyrirmyndina að heilbrigðisvottorði "POR-X" og aðferðarlýsingar fyrir prófanir fyrir munnblöðrubólgu.
  13. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 191/2013 um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 798/2008, (EB) nr. 119/2009 og (ESB) nr. 206/2010 og ákvörðun 2000/572/EB að því er varðar vottorð vegna velferðar dýra í fyrirmyndum að heilbrigðisvottorðum fyrir dýr og dýraafurðir.
  14. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 196/2013 um breytingu á II. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 206/2010 að því er varðar nýju færsluna fyrir Japan í skránni yfir þriðju lönd eða hluta þeirra þaðan sem leyfður er aðflutningur á tilteknu nýju kjöti til Evrópusambandsins.
  15. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 482/2013 frá 24. maí 2013 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 206/2010 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra, þaðan sem leyfður er aðflutningur á tilteknum dýrum og nýju kjöti til Evrópusambandsins, og um kröfur varðandi heilbrigðisvottorð fyrir dýr og dýraafurðir.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 206/2010, eins og henni er breytt með reglugerðum sem nefndar eru í töluliðum 2 til 10 í 1. gr., er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa. Jafnframt eru í fylgiskjali birtar framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar sem nefndar eru í töluliðum 11 til 15 í sömu grein.

3. gr.

Reglugerð þessi gildir með þeim takmörkunum sem leiða af lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

4. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli, lög nr. 55/1998 um sjávarafurðir, lög nr. 71/2008 um fiskeldi, lög nr. 54/1990 um innflutning dýra, lög nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lög nr. 60/2006 um varnir gegn fisksjúkdómum, nema annað sé ákveðið samkvæmt lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum.

5. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varðar sektum eða fangelsi. Um þvingunarúrræði og viðurlög vísast til laga nr. 93/1995 um matvæli, laga nr. 54/1990 innflutning dýra og laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

7. gr.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 9. september 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.