Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

897/2018

Reglugerð um (12.) breytingu á reglugerð nr. 41/2012 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 999/2001 um setningu reglna um forvarnir gegn, eftirlit með og útrýmingu tiltekinna tegunda smitandi heilahrörnunar.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 55. tölul., svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/221 frá 15. febrúar 2018 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 999/2001 og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004 að því er varðar tilvísunarrannsóknarstofu Evrópusambandsins fyrir rannsóknir á svampheilakvilla. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 131/2018, frá 6. júlí 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49, frá 26. júlí 2018, bls. 39.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. september 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.