Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Prentað þann 13. apríl 2025

Eldri útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 13. jan. 2023 – 14. júní 2023 Sjá núgildandi
Sýnir breytingar gerðar 13. jan. 2023 af rg.nr. 1716/2022

880/2015

Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Jemen.

1. gr. Almenn ákvæði.

Reglugerð þessi er sett til þess að framfylgja:

  1. ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem eru settar á grundvelli 41. gr. VII. kafla stofnskrár Sameinuðu þjóðanna,
  2. ákvörðunum framkvæmdanefnda þess um þvingunaraðgerðir og/eða
  3. ákvæðum um þvingunaraðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993, eftir því sem við á.

Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktanir öryggisráðsins og framkvæmdanefnda þess eða ályktanir Evrópusambandsins er að ræða, hverjar þær þvingunaraðgerðir eru sem koma eiga til framkvæmda og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

2. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr.:

1. Ákvörðun ráðsins 2014/932/SSUÖ frá 18. desember 2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 1.
1.1 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/882 frá 8. júní 2015 um breytingu á ákvörðun 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 2.
1.2 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2015/1927 frá 26. október 2015 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 1.2.
 1.3  Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2016/1747 frá 29. september 2016 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 1.3.
  1.4  Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/634 frá 3. apríl 2017 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 1.4.
  1.5  Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/694 frá 7. maí 2018 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 1.5.
  1.6  Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/490 frá 2. apríl 2020 um breytingu á ákvörðun 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 1.6.
  1.7  Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/398 frá 5. mars 2021 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 1.7.
  1.8  Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/2016 frá 18. nóvember 2021 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 1.8.
  1.9  Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/420 frá 14. mars 2022 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 1.9.
  1.10  Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/1902 frá 6. október 2022 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 1.10.
  1.11  Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/2035 frá 24. október 2022 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 1.11.
 2. Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1352/2014 frá 18. desember 2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 3.
2.1 Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/878 frá 8. júní 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 4.
2.2 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/879 frá 8. júní 2015 um framkvæmd 1. mgr. 15. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014 frá 18. desember 2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 5.
2.3 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/1920 frá 26. október 2015 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 2.3.
  2.4  Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2016/1737 frá 29. september 2016 um framkvæmd 3. mgr. 15. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 2.4.
  2.5  Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2017/628 frá 3. apríl 2017 um framkvæmd 3. mgr. 15. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 2.5.
  2.6  Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2018/689 frá 7. maí 2018 um framkvæmd 3. mgr. 15. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 2.6.
  2.7  Reglugerð ráðsins (ESB) 2020/488 frá 2. apríl 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 2.7.
  2.8  Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2021/397 frá 5. mars 2021 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 2.8.
  2.9  Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2021/2015 frá 18. nóvember 2021 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 2.9.
  2.10.  Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/1901 frá 6. október 2022 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 2.10.
  2.11  Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/2034 frá 24. október 2022 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen, fylgiskjal 2.11.

Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á frummáli og/eða til þeirra er vísað á vef öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna eða vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins, eftir því sem við á. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.

3. gr. Aðlögun.

Gerðir skv. 2. gr. skulu aðlagaðar með eftirfarandi hætti:

  1. ákvæði varðandi ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða aðildarríki Evrópusambandsins ("EB", "ESB", "Bandalagsins" eða "sameiginlega markaðarins") eiga við um íslenska ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða Ísland, eftir því sem við á,
  2. ákvæði um tilkynningar eða skýrslugerðir til aðildarríkja Evrópusambandsins eða stofnana þess gilda ekki. Hið sama á við um ákvæði um gildistöku eða hvenær gerðir skuli koma til framkvæmda,
  3. tilvísanir í gerðir, sem eru hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samningsins), eiga við um þau ákvæði íslensks réttar sem innleiða þær gerðir, eftir því sem við á,
  4. tilvísanir í gerðir, sem eru ekki hluti EES-samningsins, eiga við um hliðstæð ákvæði íslensks réttar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði tollalaga nr. 88/2005,
  5. tilvísanir í eldri ákvæði um þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins eiga við um eldri íslensk ákvæði, eftir því sem við á,
  6. vefsetur með upplýsingum um lögbær stjórnvöld á Íslandi er: www.utn.is/thvingunaradgerdir.

4. gr. Tilkynning.

Birting lista yfir aðila, sem nefndir eru í gerðum skv. 2. gr., skal skoðast sem tilkynning til þeirra um að þær þvingunaraðgerðir sem kveðið er á um í gerðunum beinist gegn þeim og er þeim bent á að þeir geti sótt um vissar undanþágur til utanríkisráðuneytisins eða óskað eftir afskráningu af listum, telji þeir sig ranglega skráða.

5. gr. Undanþágur frá þvingunaraðgerð.

Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum. Hann getur m.a. heimilað að efndir séu samningar eða að fullnægt sé öðrum réttindum og skyldum, sem fara í bága við reglugerð þessa en stofnuðust fyrir gildistöku hennar.

6. gr. Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.

7. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

 Fylgiskjal 1.3.

 FRAMKVÆMDARÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2016/1747
 frá 29. september 2016
 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir
 í ljósi ástandsins í Jemen.

 Viðauka við ákvörðun 2014/932/SSUÖ er hér með breytt eins og kemur fram í viðauka við ákvörðun þessa.
 (Efnisútdráttur.)

 VIÐAUKI

 [Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/dec_impl/2016/1747/oj.
 Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
 Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
 Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
 https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]

 Fylgiskjal 1.4.

 FRAMKVÆMDARÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2017/634
 frá 3. apríl 2017
 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen.

 Viðauka við ákvörðun 2014/932/SSUÖ er hér með breytt eins og kemur fram í viðauka við ákvörðun þessa.
 (Efnisútdráttur.)

 VIÐAUKI

 [Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/dec_impl/2017/634/oj.
 Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
 Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
 Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
 https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]

 Fylgiskjal 1.5.

 FRAMKVÆMDARÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2018/694
 frá 7. maí 2018
 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen.

 Viðauka við ákvörðun 2014/932/SSUÖ er hér með breytt eins og kemur fram í viðauka við ákvörðun þessa.
 (Efnisútdráttur.)

 VIÐAUKI

 [Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/dec_impl/2018/694/oj.
 Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
 Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
 Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
 https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]

 Fylgiskjal 1.6.

 ÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2020/490
 frá 2. apríl 2020
 um breytingu á ákvörðun 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen.

 RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
 með hliðsjón af sáttmálanum um Evrópusambandið, einkum 29. gr.,
 með hliðsjón af tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum,
 og að teknu tilliti til eftirfarandi:
 1) Hinn 18. desember 2014 samþykkti ráðið ákvörðun 2014/932/SSUÖ(1) um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen.
 2) Hinn 25. febrúar 2020 samþykkti öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ályktun nr. 2511 (2020) þar sem það lýsti yfir áhyggjum af yfirstandandi stjórnmála-, öryggis-, efnahags- og mannúðaráskorunum í Jemen og ítrekaði hvatningu sína til allra málsaðila í Jemen um að leysa ágreining sinn með viðræðum og samráði.
 3) Í ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 2511 (2020) er lögð áhersla á mikilvægi þess að greiða fyrir mannúðaraðstoð og kveðið á um að nefndin, sem komið er á fót með 19. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2140 (2014), geti, í hverju tilviki fyrir sig, veitt hvers kyns aðgerðum undanþágu frá þeim refsiaðgerðum
 sem öryggisráðið mælti fyrir um í ályktunum nr. 2140 (2014) og nr. 2216 (2015) ef nefndin ákveður að slík undanþága sé nauðsynleg til að greiða fyrir starfi Sameinuðu þjóðanna og annarra mannúðarsamtaka í Jemen eða í einhverjum öðrum tilgangi sem samrýmist markmiðum þessara ályktana.
 4) Í ályktun öryggisráðs SÞ nr. 2511 (2020) er einnig staðfest að kynferðislegt ofbeldi í vopnuðum átökum eða það að kveðja börn til herþjónustu eða nota þau í vopnuðum átökum, sem er brot á alþjóðalögum, gæti talist vera verknaður, eins og tilgreint er í c-lið 18. mgr. ályktunar öryggisráðs SÞ nr. 2140 (2014), og þar með
 verknaður sem fellur undir refsiaðgerðir og felur í sér að taka þátt í eða veita aðstoð við aðgerðir sem eru ógn við frið, öryggi eða stöðugleika í Jemen, eins og lýst er í 17. mgr. þeirrar ályktunar.
 5) Frekari aðgerða er þörf af hálfu Sambandsins til þess að hrinda í framkvæmd tilteknum aðgerðum í ákvörðun þessari.
 6) Því ætti að breyta ákvörðun 2014/932/SSUÖ til samræmis við það.

 SAMÞYKKT ÁKVÖRÐUN ÞESSA:

 1. gr.

 Ákvörðun 2014/932/SSUÖ er breytt sem hér segir:
 1) Í stað c-liðar 1. mgr. 2. gr. a kemur eftirfarandi:
 „c) skipulagningu, stjórnun eða framkvæmd verknaða sem brjóta í bága við viðeigandi alþjóðleg mannréttindalög eða alþjóðlegan mannúðarrétt, eða sem eru mannréttindabrot í Jemen, þ.m.t. kynferðislegt ofbeldi í vopnuðum átökum eða að kveðja börn til herþjónustu eða nota þau í vopnuðum átökum sem er brot á alþjóðalögum eða“
 2) Í stað c-liðar 1. mgr. 2. gr. b kemur eftirfarandi:
 „c) skipulagningu, stjórnun eða framkvæmd verknaða sem brjóta í bága við viðeigandi alþjóðleg mannréttindalög eða alþjóðlegan mannúðarrétt, eða sem eru mannréttindabrot í Jemen, þ.m.t. kynferðislegt ofbeldi í vopnuðum átökum eða að kveðja börn til herþjónustu eða nota þau í vopnuðum átökum sem er brot á alþjóðalögum eða“
 3) Eftirfarandi grein er bætt við:
 „6. gr a.
 Þrátt fyrir aðgerðirnar, sem mælt er fyrir um í ályktunum öryggisráðs SÞ nr. 2140 (2014) og nr. 2216 (2015), skal lögbært stjórnvald aðildarríkis veita nauðsynlega heimild, að því tilskildu að framkvæmdanefndin um þvingunaraðgerðir hafi ákveðið í hverju tilviki fyrir sig að undanþága sé nauðsynleg til að greiða fyrir starfi
 Sameinuðu þjóðanna og annarra mannúðarsamtaka í Jemen eða í einhverjum öðrum tilgangi sem samrýmist markmiðum þessara ályktana.“

 2. gr.

 Ákvörðun þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.

 Gjört í Brussel 2. apríl 2020.

 Fyrir hönd ráðsins,
 forseti.
 A. METELKO-ZGOMBIĆ

 (1) Ákvörðun ráðsins 2014/932/SSUÖ frá 18. desember 2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen (Stjtíð. ESB L 365,
 19.12.2014, bls. 147).

 Fylgiskjal 1.7.

 FRAMKVÆMDARÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2021/398
 frá 5. mars 2021
 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir
 í ljósi ástandsins í Jemen.

 Viðauka við ákvörðun 2014/932/SSUÖ er hér með breytt eins og kemur fram í viðauka við ákvörðun þessa.
 (Efnisútdráttur.)

 VIÐAUKI

 [Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/dec_impl/2021/398/oj.
 Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
 Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
 Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
 https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]

 Fylgiskjal 1.8.

 FRAMKVÆMDARÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2021/2016
 frá 18. nóvember 2021
 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir
 í ljósi ástandsins í Jemen.

 Viðauka við ákvörðun 2014/932/SSUÖ er hér með breytt eins og kemur fram í viðauka við ákvörðun þessa.
 (Efnisútdráttur.)

 VIÐAUKI

 [Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/dec/2021/2016/oj.
 Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
 Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
 Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
 https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]

 Fylgiskjal 1.9.

 FRAMKVÆMDARÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2022/420
 frá 14. mars 2022
 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir
 í ljósi ástandsins í Jemen.

 Viðauka við ákvörðun 2014/932/SSUÖ er hér með breytt eins og kemur fram í viðauka við ákvörðun þessa.
 (Efnisútdráttur.)

 VIÐAUKI

 [Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/dec_impl/2022/420/oj.
 Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3.
 mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
 Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
 Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
 https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.

 Fylgiskjal 1.10.

 FRAMKVÆMDARÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2022/1902
 frá 6. október 2022
 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir
 í ljósi ástandsins í Jemen.

 Viðauka við ákvörðun 2014/932/SSUÖ er hér með breytt eins og kemur fram í viðauka við ákvörðun þessa.
 (Efnisútdráttur.)

 VIÐAUKI

 [Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/dec_impl/2022/1902/oj.
 Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerð,a nr. 93/2008.
 Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
 Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
 https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]

 Fylgiskjal 1.11.

 FRAMKVÆMDARÁKVÖRÐUN RÁÐSINS (SSUÖ) 2022/2035
 frá 24. október 2022
 um framkvæmd ákvörðunar 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir
 í ljósi ástandsins í Jemen.

 Viðauka við ákvörðun 2014/932/SSUÖ er hér með breytt eins og kemur fram í viðauka við ákvörðun þessa.
 (Efnisútdráttur.)

 VIÐAUKI

 [Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/dec_impl/2022/2035/oj.
 Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3.
 mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
 Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
 Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
 https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]

 Fylgiskjal 2.4.

 FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2016/1737
 frá 29. september 2016
 um framkvæmd 3. mgr. 15. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014
 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen.

 I. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 1352/2014 er hér með breytt eins og kemur fram í viðauka við ákvörðun þessa.
 (Efnisútdráttur.)

 VIÐAUKI

 [Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/reg_impl/2016/1737/oj.
 Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3.
 mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
 Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
 Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
 https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]

 Fylgiskjal 2.5.

 FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2017/628
 frá 3. apríl 2017
 um framkvæmd 3. mgr. 15. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir
 í ljósi ástandsins í Jemen.

 I. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 1352/2014 er hér með breytt eins og kemur fram í viðauka við ákvörðun þessa.
 (Efnisútdráttur.)

 VIÐAUKI

 [Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/reg_impl/2017/628/oj.
 Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3.
 mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
 Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
 Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
 https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]

 Fylgiskjal 2.6.

 FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2018/689
 frá 7. maí 2018
 um framkvæmd 3. mgr. 15. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir
 í ljósi ástandsins í Jemen.

 I. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 1352/2014 er hér með breytt eins og kemur fram í viðauka við ákvörðun þessa.
 (Efnisútdráttur.)

 VIÐAUKI

 [Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/reg_impl/2018/689/oj.
 Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
 Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
 Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
 https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]

 Fylgiskjal 2.7.

 REGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2020/488
 frá 2. apríl 2020
 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir
 í ljósi ástandsins í Jemen.

 RÁÐ EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
 með hliðsjón af sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins, einkum 215. gr.,
 með hliðsjón af ákvörðun ráðsins 2014/932/SSUÖ frá 18. desember 2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins
 í Jemen(1),
 með hliðsjón af sameiginlegri tillögu frá æðsta fulltrúa Sambandsins í utanríkis- og öryggismálum og
 framkvæmdastjórn Evrópusambandsins,
 og að teknu tilliti til eftirfarandi:
 1) Hinn 18. desember 2014 samþykkti ráðið reglugerð (ESB) nr. 1352/2014(2).
 2) Hinn 25. febrúar 2020 samþykkti öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ályktun nr. 2511 (2020).
 3) Í ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna (UNSCR) nr. 2511 (2020) er lögð áhersla á mikilvægi þess að greiða fyrir mannúðaraðstoð. Enn fremur er kveðið á um það í ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 2511 (2020) að nefndin sem komið er á fót skv. 19. mgr. ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 2140
 (2014) megi, í hverju tilviki fyrir sig, heimila starfsemi sem er nauðsynleg til að greiða fyrir starfsemi Sameinuðu þjóðanna og annarra mannúðarstofnana í Jemen eða í öðrum tilgangi sem samrýmist markmiðum ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 2140 (2014) og ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 2216 (2015).
 4) Í ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 2511 (2020) er einnig tilgreint að kynferðislegt ofbeldi í vopnuðum átökum og það að taka börn í þjónustu sína eða nota þau í vopnuðum átökum og brjóta þannig gegn gildandi reglum þjóðaréttar séu verknaðir sem varði refsiaðgerðum.
 5) Hinn 2. apríl 2020 samþykkti ráðið ákvörðun (SSUÖ) nr. 2020/490(3) um breytingu á ákvörðun 2014/932/SSUÖ í samræmi við ályktun öryggisráðs SÞ nr. 2511 (2020).
 6) Nokkrar þessara breytinga falla undir gildissvið sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins og því er lagasetning á vettvangi Evrópusambandsins nauðsynleg til að hrinda þeim í framkvæmd, einkum til að tryggt sé að rekstraraðilar í öllum aðildarríkjunum beiti þeim með samræmdum hætti.
 7) Því ætti að breyta reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1352/2014 til samræmis við það.

 SAMÞYKKT REGLUGERÐ ÞESSA:

 1. gr.

 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1352/2014 er breytt sem hér segir:
 1) Eftirfarandi kemur í stað 1. mgr. 3. gr.:
 „1. Inn í I. viðauka skal fella einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir sem framkvæmdanefndin um þvingunaraðgerðir hefur tilgreint að taki þátt í eða veiti aðstoð við aðgerðir sem eru ógn við frið, öryggi eða stöðugleika í Jemen, þ.m.t. en einskorðast ekki við:
 a) aðgerðir sem ógna eða grafa undan því að unnt verði að ljúka pólitísku umbreytingarferli með fullnægjandi hætti eins og það er sett fram í samningi Samstarfsráðs Arabaríkjanna við Persaflóa um fyrirkomulag varðandi frumkvæði og framkvæmd (e. Gulf Cooperation Council (GCC) Initiative and
 Implementation Mechanism Agreement),
 b) aðgerðir sem torvelda framkvæmd niðurstaðna lokaskýrslu víðtæku landsráðstefnunnar um skoðanaskipti (e. Comprehensive National Dialogue Conference) með ofbeldi eða árásum á nauðsynlega innviði,
 c) skipulagningu, stjórnun eða framkvæmd verknaða sem brjóta í bága við viðeigandi alþjóðleg mannréttindalög eða alþjóðlegan mannúðarrétt, eða sem eru mannréttindabrot, í Jemen, þ.m.t. kynferðislegt ofbeldi í vopnuðum átökum eða það að taka börn í þjónustu sína eða nota þau í vopnuðum átökum og
 brjóta þannig gegn gildandi reglum þjóðaréttar,
 d) aðgerðir sem brjóta gegn vopnasölubanninu sem lagt var á skv. 1. gr. ákvörðunar 2014/932/SSUÖ eða hindra mannúðaraðstoð við Jemen eða aðgang að mannúðaraðstoð eða úthlutun hennar í Jemen.“
 2) Eftirfarandi grein bætist við:
 „3. gr. a
 Þrátt fyrir 1. gr. a og 2. gr. geta lögbær stjórnvöld aðildarríkjanna heimilað:
 a) að láta í té tækniaðstoð, fjármögnun eða fjárhagsaðstoð sem tengist starfseminni sem lýst er í 1. gr. a,
 b) að tilteknir frystir fjármunir eða efnahagslegur auður verði affrystur eða að tilteknir fjármunir eða efnahagslegur auður verði gerður aðgengilegur, samkvæmt þeim skilyrðum sem þau telja viðeigandi og að því tilskildu að framkvæmdanefndin um þvingunaraðgerðir hafi ákvarðað í hverju tilviki fyrir sig að undanþága sé nauðsynleg til að greiða fyrir störfum Sameinuðu þjóðanna og annarra mannúðarstofnana í Jemen eða í öðrum tilgangi sem samrýmist markmiðum ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 2140 (2014) og ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 2216 (2015).“
 3) Í stað a-liðar 1. mgr. 13. gr. kemur eftirfarandi:
 „a) um frysta fjármuni skv. 2. gr. og heimildir sem veittar eru skv. 3. gr. a, 4., 5., 6. og 7. gr.,“.

 2. gr.

 Reglugerð þessi öðlast gildi daginn eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
 Reglugerð þessi er bindandi í heild sinni og gildir í öllum aðildarríkjunum án frekari lögfestingar.

 Gjört í Brussel 2. apríl 2020.

 Fyrir hönd ráðsins,
 forseti.
 A. METELKO-ZGOMBIĆ

 (1) Stjtíð. ESB L 365, 19.12. 2014, bls. 147.
 (2) Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1352/2014 frá 18. desember 2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen (Stjtíð. ESB L 365, 19.12.2014, bls. 60).
 (3) Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/490 frá 2. apríl 2020 um breytingu á ákvörðun 2014/932/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Jemen (Stjtíð. ESB L 105, 3.4.2020, bls. 7).

 Fylgiskjal 2.8.

 FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2021/397
 frá 5. mars 2021
 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir
 í ljósi ástandsins í Jemen.

 I. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 1352/2014 er hér með breytt eins og kemur fram í viðauka við ákvörðun þessa.
 (Efnisútdráttur.)

 VIÐAUKI

 [Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/reg_impl/2021/397/oj.
 Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
 Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
 Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
 https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]

 Fylgiskjal 2.9.

 FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2021/2015
 frá 18. nóvember 2021
 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir
 í ljósi ástandsins í Jemen.

 I. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 1352/2014 er hér með breytt eins og kemur fram í viðauka við reglugerð þessa.
 (Efnisútdráttur.)

 VIÐAUKI

 [Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/reg_impl/2021/2015/oj.
 Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
 Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
 Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
 https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]

 Fylgiskjal 2.10.

 FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2022/1901
 frá 6. október 2022
 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir
 í ljósi ástandsins í Jemen.

 I. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 1352/2014 er hér með breytt eins og kemur fram í viðauka við reglugerð þessa.
 (Efnisútdráttur.)

 VIÐAUKI

 [Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/reg_impl/2022/1901/oj.
 Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
 Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
 Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
 https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]

 Fylgiskjal 2.11.

 FRAMKVÆMDARREGLUGERÐ RÁÐSINS (ESB) 2022/2034
 frá 24. október 2022
 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 1352/2014 um þvingunaraðgerðir
 í ljósi ástandsins í Jemen.

 I. viðauka við reglugerð (ESB) nr. 1352/2014 er hér með breytt eins og kemur fram í viðauka við reglugerð þessa.
 (Efnisútdráttur.)

 VIÐAUKI

 [Viðaukinn er birtur á vef Stjórnartíðinda ESB: http://data.europa.eu/eli/reg_impl/2022/2034/oj.
 Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða, nr. 93/2008.
 Vefur Stjórnartíðinda Evrópusambandsins er hér: http://eurlex.europa.eu.
 Heildarlisti yfir aðila sem eru háðir frystingu fjármuna er hér:
 https://ec.europa.eu/info/business-economy-euro/banking-and-finance/international-relations/restrictivemeasures-sanctions_en#list.]

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.