Fara beint í efnið

Prentað þann 21. des. 2024

Breytingareglugerð

873/2016

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 954/2013 um þrávirk lífræn efni.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir stafliðir, k- og l-liður, sem orðast svo:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/460 frá 30. mars 2016 um breytingu á IV. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 850/2004 um þrávirk, lífræn mengunarefni, sem vísað er til í tölulið 12w, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2016, þann 3. júní 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 18. ágúst 2016, bls. 420-427.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/293 frá 1. mars 2016 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 850/2004 um þrávirk, lífræn mengunarefni að því er varðar I. viðauka, sem vísað er til í tölulið 12w, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 147/2016, þann 8. júlí 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 52 frá 22. september 2016, bls. 183-187.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á eftirfarandi EES-gerðum:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/460 frá 30. mars 2016 um breytingu á IV. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 850/2004 um þrávirk, lífræn mengunarefni.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/293 frá 1. mars 2016 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 850/2004 um þrávirk, lífræn mengunarefni að því er varðar I. viðauka.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 11. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013 og 43. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 10. október 2016.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.