Prentað þann 7. apríl 2025
858/2018
Reglugerð um breytingu á reglugerð um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða, nr. 782/2017.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Falli atkvæði í stjórn jöfn ræður atkvæði formanns úrslitum.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglugerðarinnar:
- c-liður 1. mgr. orðast svo: undirbúnings- og hönnunarvinnu vegna verkefna sem eru styrkhæf samkvæmt a- eða b-lið.
- 1. málsl. 2. mgr. orðast svo: Mótframlag styrkhafa miðast að jafnaði við 20% af styrkfjárhæð.
- 5. mgr. orðast svo:
Sé aðeins veittur styrkur til undirbúnings- eða hönnunarvinnu skv. c-lið 1. mgr. skal sú framkvæmd sem undirbúningur eða hönnunarvinna er vegna vera að öðru leyti styrkhæf skv. a- eða b-lið 1. mgr. Fyrirhuguðu verkefni skal í umsókn lýst svo skilmerkilega að mögulegt sé að meta styrkhæfi þess.
3. gr.
c-liður 6. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Styrkja fyrirtæki sem hafa með höndum rekstur ferðamannastaða umfram þá hámarksupphæð sem leyfilegt er samkvæmt reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1407/2013 um minniháttar aðstoð (de minimis reglu), nú að hámarki 200.000 evrur á hverju 36 mánaða tímabili að frádregnum öðrum styrkjum frá opinberum sjóðum sem viðkomandi hefur fengið til sömu verkefna á sama tímabili.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglugerðarinnar:
- Við c-lið bætist: og framkvæmdaleyfi ef við á.
-
Við bætist nýr stafliður sem orðast svo:
- Myndir af framkvæmdarstað sem sýna aðstæður. Myndir sem teknar eru skulu teknar þannig að auðvelt verði að taka samanburðarmyndir á sama stað síðar.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. reglugerðarinnar:
- 1. mgr. orðast svo:
Styrkur greiðist út til styrkþega í samræmi við samþykkta kostnaðar-, verk- og framkvæmdaráætlun, sbr. b-lið 8. gr., þegar verkefni er lokið og lokaskýrsla hefur verið samþykkt. Styrkþega er heimilt að skila inn framvinduskýrslu sem lýsir a.m.k. hálfnuðu verki og greiðist þá 40% af styrkfjárhæðinni við samþykkt hennar. - 2. mgr. fellur brott.
6. gr.
6. mgr. 13. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
7. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 6. gr. laga um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða, nr. 75/2011 og öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 26. september 2018.
F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,
Ingvi Már Pálsson.
Heimir Skarphéðinsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.