Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 24. júlí 2026

Reglugerð með breytingum síðast breytt 30. maí 2026
Sýnir breytingar gerðar 30. maí 2026 af rg.nr. 601/2026

854/2016

Reglugerð um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferð fyrir skírteini og þjálfun flugumferðarstjóra.

1. gr. Efni og gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um flugumferðarstjóranema og flugumferðarstjóra sem sinna verkefnum sínum innan gildissviðs reglugerðar (EB) nr. 216/2008, sem og einstaklinga og fyrirtæki sem taka þátt í útgáfu skírteina, þjálfun, prófun, eftirliti og heilbrigðisskoðun og -mati umsækjenda í samræmi við þessa reglugerð.

2. gr. Lögbært yfirvald.

Samgöngustofa er lögbært yfirvald samkvæmt reglugerð þessari.

3. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirtaldar gerðir með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/340 frá 20. febrúar 2015 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferð er varða skírteini flugumferðarstjóra og vottorð samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 216/2008, um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 923/2012 og um niðurfellingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 805/2011. Reglugerðin birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44, dags. 18. ágúst 2016, bls. 498, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 125/2016 frá 3. júní 2016.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/893 frá 21. apríl 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) 2015/340 um tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferð er varða skírteini flugumferðarstjóra og vottorð. Reglugerðin birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10, dags. 20. febrúar 2025, bls. 975, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 296/2024 frá 6. desember 2024.

 Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2143 frá 23. október 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) 2015/340 að því er varðar innleiðingu á hæfnimiðaðri þjálfun og mati sem og sýndarþjálfun fyrir flugumferðarstjóra. Reglugerðin birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36, 28. maí 2026, bls. 26, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 100 frá 20. mars 2026.

5. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem er sett með stoð í 73. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir, nr. 60/1998, öðlast þegar gildi.

Viðaukar I-IV við reglugerð (ESB) 2015/340 skulu koma til framkvæmda 1. janúar 2017. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1044/2013 um skírteini flugumferðarstjóra og starfsleyfi þjálfunarfyrirtækja.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.