Prentað þann 27. mars 2026
842/2025
Reglugerð um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Rússland, nr. 893/2024.
1. gr. Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
3.1 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2025/963 frá 20. maí 2025 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika, sbr. fylgiskjal 3.1.
4.1 Reglugerð ráðsins (ESB) 2025/964 frá 20. maí 2025 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika, sbr. fylgiskjal 4.1.
2. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 8. júlí 2025.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Martin Eyjólfsson.
B deild - Útgáfudagur: 28. júlí 2025
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.