Prentað þann 22. okt. 2026
837/2026
Reglugerð um framlög til að mæta kostnaði sveitarfélaga vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna á árinu 2026.
1. gr.
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga ráðstafar framlagi til einstakra sveitarfélaga til að mæta kostnaði vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna á árinu 2026, sbr. 13. gr. laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 56/2025.
Framlög til einstakra sveitarfélaga skulu ekki vera hærri en umframkostnaður sveitarfélagsins af framkvæmd laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna að frádregnum ávinningi sem sveitarfélagið fær af þeim.
2. gr.
Við úthlutun framlagsins til sveitarfélaga árið 2026, skal hlutfallsskipta fjármagni til ráðstöfunar á grundvelli eftirfarandi breytna fyrir hvert sveitarfélag sem allar hafa jafnt vægi, og byggja á upplýsingum frá Hagstofu Íslands:
- Fjöldi barna 1. janúar 2025.
- Meðaltal barna með stuðning í grunnskólum skólaárin 2021/2022, 2022/2023 og 2023/2024 og fjöldi barna með stuðning í leikskólum árin 2022, 2023 og 2024.
- Fjöldi barna á heimilum með undir 60% af miðgildi ráðstöfunartekna árið 2024.
- Fjöldi innflytjenda af fyrstu og annarri kynslóð 1. janúar 2025.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 13. gr. laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 56/2025, tekur þegar gildi. Við gildistöku hennar fellur úr gildi reglugerð um framlög til að mæta kostnaði sveitarfélaga vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna á árinu 2025, nr. 1667/2024.
Innviðaráðuneytinu, 17. mars 2026.
Eyjólfur Ármannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 23. júlí 2026
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.