Prentað þann 11. apríl 2025
833/1999
Reglugerð um breytingu á reglugerð fyrir Rafmagnsveitur ríkisins nr. 122/1992 með áorðnum breytingum.
1. gr.
Við 7. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Nú lætur stjórnarmaður af störfum á skipunartíma og skal ráðherra þá þegar skipa annan mann í hans stað.
2. gr.
Reglugerð þessi, er sett samkvæmt heimild í 68. gr. orkulaga nr. 58/1967, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Iðnaðarráðuneytinu, 26. nóvember 1999.
Finnur Ingólfsson.
Þorgeir Örlygsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.