Fara beint í efnið

Prentað þann 25. des. 2024

Breytingareglugerð

832/2017

Reglugerð um (8.) breytingu á reglugerð nr. 888/2015 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH).

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist einn töluliður, 47. liður, sem orðast svo:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/706 frá 19. apríl 2017 um breytingu á VII. viðauka (viðvíkjandi húðnæmingu) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)) og um niðurfellingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1688 sem vísað er til í tölul. 12zc, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 130/2017, þann 7. júlí 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 48 frá 3. ágúst 2017, bls. 931-934.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/706 frá 19. apríl 2017 um breytingu á VII. viðauka (viðvíkjandi húðnæmingu) við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1907/2006 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (efnareglurnar (REACH)) og um niðurfellingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1688.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 14. september 2017.

Björt Ólafsdóttir.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.