Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Fyrri útgáfa

Prentað þann 18. apríl 2025

Reglugerð með breytingum síðast breytt 7. apríl 2015
Sýnir breytingar gerðar 7. apríl 2015 af rg.nr. 1279/2014

819/2010

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar og ráðsins (EB) nr. 106/2008 frá 15. janúar 2008 um áætlun BandalagsinsSambandsins varðandi orkunýtnimerkingar á skrifstofubúnaði.orkunýtnimerkingar á skrifstofubúnaði.

1. gr.

Reglugerð þessi er sett í samræmi við ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 69/2010 frá 11. júní 2010, um að fella inn í EES-samninginn og taka upp í innlendan rétt ákvæði reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar og ráðsins (EB) nr. 106/2008 frá 15. janúar 2008 um áætlun Bandalagsins varðandi orkunýtnimerkingar á skrifstofubúnaði.

2. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar og ráðsins (EB) nr. 106/2008 frá 15. janúar 2008 um áætlun Bandalagsins varðandi orkunýtnimerkingar á skrifstofubúnaði, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á IV. viðauka við EES-samninginn, nr. 69/2010, frá 11. júní 2010.

 Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir lið 30 í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 187/2014, frá 25. september 2014, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af framangreindum viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

 Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar og ráðsins (ESB) nr. 174/2013, frá 5. febrúar 2013, um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar og ráðsins (EB) nr. 106/2008 um áætlun Bandalagsins varðandi orkunýtnimerkingar á skrifstofubúnaði.

3. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar og ráðsins (EB) nr. 106/2008 frá 15. janúar 2008 um áætlun Bandalagsins varðandi orkunýtnimerkingar á skrifstofubúnaði er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 56/2010, 7. október 2010, bls. 294.

 Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar og ráðsins (ESB) nr. 174/2013 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64/2014, 30. október 2014, bls. 340.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 8. gr. laga nr. 72/1994 um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi orkunotkun heimilistækja o.fl., með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 Iðnaðarráðuneytinu, 21. október 2010. 

 F. h. r.

 Kristján Skarphéðinsson. 

 Guðjón Axel Guðjónsson. 

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.