Prentað þann 16. mars 2025
819/2006
Reglugerð um innleiðingu ákvörðunar nr. 24/54 frá 6. maí 1954 varðandi reglugerð um framkvæmd 1. mgr. 66. gr. sáttmálans um yfirráð í fyrirtæki.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í 14. tl. XIV. viðauka, gildir hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIV. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Eftirtalin EB-gerð gildir því hér á landi:
Ákvörðun nr. 24/54 frá 6. maí 1954 varðandi reglugerð um framkvæmd 1. mgr. 66. gr. sáttmálans um yfirráð í fyrirtæki.
2. gr.
Ákvörðun nr. 24/54 hefur áður verið birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, sérriti S41, bls. 114-115.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, öðlast þegar gildi.
Með reglugerð þessari fellur úr gildi l-liður 2. gr. reglugerðar nr. 594/1993 um efnislegar samkeppnisreglur samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.
Viðskiptaráðuneytinu, 18. september 2006.
F. h. r.
Kristján Skarphéðinsson.
Jónína S. Lárusdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.