Prentað þann 2. nóv. 2026
816/2026
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1495/2025 um greiðsluþátttöku sjúkratryggða í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglugerðarinnar:
- Við bætist nýr töluliður, 6. tölul., svohljóðandi: 6. Greiðslur skv. 2. mgr. 21. gr. vegna komugjalds fyrir þjálfun.
- Í stað orðanna "33. gr." í 7. tölul. kemur: 1. mgr. 33. gr.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað fjárhæðarinnar "500 kr." í 1. tölul. 1. mgr. kemur: 1.000 kr.
- Í stað orðanna "sjúkratryggðir almennt greiða 500 kr." í 4. mgr. kemur: sjúkratryggðir almennt greiða gjald skv. 1. tölul. 1. mgr.
3. gr.
Í stað fjárhæðarinnar "3.100 kr." í 1. tölul. 1. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar kemur: 3.500 kr.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað fjárhæðarinnar "3.400 kr." í 1. tölul. 1. mgr. kemur: 3.800 kr.
- Í stað fjárhæðarinnar "4.500 kr." í 1. tölul. 2. mgr. kemur: 5.000 kr.
5. gr.
Í stað orðanna "Sjúkratryggðir greiða 500 kr." í 8. mgr. 12. gr. reglugerðarinnar kemur: Sjúkratryggðir greiða gjald skv. 1. tölul. 1. mgr. 8. gr.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 21. gr. reglugerðarinnar:
-
Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Auk greiðslna samkvæmt 1. mgr. skulu sjúkratryggðir greiða komugjald sem falla ekki í afsláttarstofn, sbr. 5. gr., fyrir þjálfun sem hér segir:- Sjúkratryggðir almennt, 1.500 kr.
- Aldraðir, 1.000 kr.
- Öryrkjar, 500 kr.
- Börn greiða ekkert gjald.
Heildargreiðslur sjúkratryggðra verða þó ekki meira en 100% af umsömdu heildarverði.
7. gr.
Í stað fjárhæðarinnar "500 kr." í 1. tölul. 1. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar kemur: 1.000 kr.
8. gr.
Við 33. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Þegar ekki er um sjúkraflutning að ræða greiða sjúkratryggðir gjald fyrir komu í sjúkrabifreið, sem ekki var sérstaklega kölluð til vegna þeirra, samkvæmt 8. og 9. gr.
9. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 1. mgr. 29. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, sbr. 17. gr., 18. gr. og 21. gr. sömu laga og 38. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, öðlast gildi 1. september 2026.
Heilbrigðisráðuneytinu, 7. júlí 2026.
F. h. r.
Ásta Valdimarsdóttir.
Guðríður Bolladóttir.
B deild - Útgáfudagur: 16. júlí 2026
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.