Fara beint í efnið

Prentað þann 1. nóv. 2026

Stofnreglugerð

814/2026

Reglugerð um tímabundið bann við veiðum með öllum veiðarfærum austur af Grímsey.

1. gr.

Frá og með 1. ágúst 2026 til og með 30. september 2028 eru allar veiðar með öllum veiðarfærum bannaðar á svæði austur af Grímsey, sem markast af línu sem dregin er milli eftirfarandi hnita:

  1. 66°36,30´N, 017°38,00´V
  2. 66°35,88´N, 017°38,44´V
  3. 66°35,71´N, 017°39,50´V
  4. 66°35,88´N, 017°40,56´V
  5. 66°36,30´N, 017°41,00´V
  6. 66°36,72´N, 017°40,56´V
  7. 66°36,89´N, 017°39,50´V
  8. 66°36,72´N, 017°38,44´V

2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 9. gr. og 14. gr. laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 30. september 2028.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 24. júní 2026.

Hanna Katrín Friðriksson.

Hallveig Ólafsdóttir.

B deild - Útgáfudagur: 16. júlí 2026

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.