Prentað þann 16. mars 2025
813/2006
Reglugerð um innleiðingu reglugerðar ráðsins (EB) nr. 139/2004 frá 20. janúar 2004 um eftirlit með samfylkingum fyrirtækja.
1. gr.
Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 78/2004 frá 8. júní 2004 gildir eftirtalin EB-gerð hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIV. viðauka við EES-samninginn um samkeppni, bókun I um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð ráðsins (EB) nr. 139/2004 frá 20. janúar 2004 um eftirlit með samfylkingum fyrirtækja (samrunareglugerð EB).
2. gr.
Reglugerð ráðsins (EB) nr. 139/2004 hefur áður verið birt sem fylgiskjal með reglugerð nr. 654/2005 sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda 2005, bls. 1452-1474.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, öðlast þegar gildi.
Með þessari reglugerð fellur úr gildi 1. gr. j reglugerðar nr. 593/1993 um málsmeðferð og valdsvið eftirlitsstofnunar EFTA á sviði samkeppni samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. reglugerð nr. 654/2005.
Viðskiptaráðuneytinu, 18. september 2006.
F. h. r.
Kristján Skarphéðinsson.
Jónína S. Lárusdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.