Prentað þann 25. apríl 2025
810/2019
Reglugerð um bann við veiðum á sæbjúgum á veiðisvæði út af Vestfjörðum, suðursvæði.
1. gr.
Frá 13. september 2019 eru allar veiðar á sæbjúgum óheimilar á veiðisvæði út af Vestfjörðum, suðursvæði sem afmarkast að eftirfarandi hnitum:
- 65°30,00 N - 23°00,00 V
- 65°30,00 N - 25°00,00 V
- 66°00,00 N - 25°00,00 V
- 66°00,00 N - 23°00,00 V
- 65°30,00 N - 23°00,00 V
2. gr.
Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 31. ágúst 2020.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 13. september 2019.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Jóhann Guðmundsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.