Prentað þann 5. des. 2025
805/2025
Reglugerð um breytingu á reglugerð um sameiginlegar reglur um almenningsflug og um stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópusambandsins, nr. 270/2024.
1. gr.
Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1403 frá 12. mars 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1139 með því að mæla fyrir um skilyrði og verklagsreglur fyrir faggildingu Flugöryggisstofnunar Evrópusambandsins á hæfum aðilum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 106/2025 frá 8. maí 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 33 frá 22. maí 2025, bls. 81-84.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 20. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 2. júlí 2025.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
Vala Hrönn Viggósdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 16. júlí 2025
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.