Prentað þann 23. apríl 2025
800/2021
Reglugerð um þorskígildisstuðla fyrir fiskveiðiárið 2021/2022.
1. gr.
Þorskígildisstuðlar hafa verið ákvarðaðir, sbr. 19. gr. laga um stjórn fiskveiða.
2. gr.
Þorskígildisstuðlar fyrir fiskveiðiárið 1. september 2021 til 31. ágúst 2022 eru sem hér segir:
Tegund | Stuðlar | Tegund | Stuðlar | Tegund | Stuðlar |
Blágóma | 0,07 | Keila | 0,29 | Slétti langhali | 0,28 |
Blálanga | 0,51 | Kræklingur | 0,00 | Smokkfiskur | 0,07 |
Brynstirtla | 0,06 | Kúskel | 0,24 | Snarphali | 0,19 |
Búrfiskur | 1,63 | Langa | 0,55 | Spærlingur | 0,10 |
Djúpkarfi | 0,76 | Langlúra | 0,66 | Steinbítur | 0,51 |
Geirnyt | 0,04 | Litla brosma | 0,08 | Stinglax | 0,66 |
Gjölnir | 0,25 | Litli karfi | 0,29 | Stóra brosma | 0,13 |
Grálúða | 2,05 | Loðna | 0,36 | Svartháfur | 0,03 |
Grásleppa | 0,51 | Lúða | 1,49 | Sæbjúga | 0,26 |
Grjótkrabbi/klettakrabbi | 0,45 | Lýr | 0,21 | Tindaskata | 0,06 |
Gullkarfi | 0,67 | Lýsa | 0,35 | Trjónukrabbi | 0,33 |
Gulllax | 0,28 | Náskata | 0,09 | Túnfiskur | 0,44 |
Háfur | 0,09 | Rauðmagi | 0,27 | Ufsi | 0,55 |
Hákarl | 0,07 | Rækja á grunnslóð | 0,74 | Urrari | 0,07 |
Hámeri | 0,21 | Rækja við Snæfellsnes | 0,86 | Úthafsrækja | 0,88 |
Hlýri | 0,71 | Sandhverfa | 4,12 | Vogmær | 0,06 |
Humar (slitinn) | 3,43 | Sandkoli | 0,34 | Ýsa | 0,90 |
Hvítskata | 0,07 | Skarkoli | 0,95 | Þorskur | 1,00 |
Hörpudiskur | 0,44 | Skata | 0,27 | Þykkvalúra/sólkoli | 1,21 |
Ígulker | 0,45 | Skrápflúra | 0,13 | Öfugkjafta | 0,69 |
Íslensk sumargotssíld | 0,16 | Skötuselur | 1,56 |
Þorskígildisstuðlar vegna aflaheimilda sem miðast við almanaksárið 2022 eru sem hér segir:
Tegund | Stuðlar |
Kolmunni | 0,08 |
Makríll | 0,20 |
Norður-Íshafsþorskur | 1,00 |
Norsk-íslensk síld | 0,16 |
3. gr.
Reglugerð þessi er sett, skv. 19. gr. laga um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast gildi 1. september 2021.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.