Prentað þann 24. nóv. 2024
795/2023
Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 105/2020.
1. gr.
Í 1. gr. reglugerðarinnar breytist töluliður 8 og verður svohljóðandi:
8. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/410 frá 19. desember 2022 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849, að því er varðar að bæta Lýðveldinu Kongó, Gíbraltar, Mósambík, Tansaníu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum í töfluna í I. lið í viðaukanum, sem vísað er til í IX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 252/2018 frá 5. desember 2018, og fella Níkaragva, Pakistan og Zimbabwe brott úr þeirri töflu. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37, 11. maí 2023, bls. 631.
2. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, töluliður 9, svohljóðandi:
9. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1219 frá 17. maí 2023 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849, að því er varðar að bæta Nígeríu og Suður-Afríku í töfluna í I. lið í viðaukanum, sem vísað er til í IX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 252/2018 frá 5. desember 2018 og fella Kambódíu og Marokkó brott úr þeirri töflu. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1219 er birt sem fylgiskjal II við reglugerð þessa.
3. gr.
Listi yfir áhættusöm þriðju lönd, sem birtur er sem fylgiskjal við reglugerð nr. 105/2020, tekur breytingum til samræmis við þær breytingar sem tilgreindar eru í 2. gr. reglugerðar þessarar. Listinn er birtur uppfærður sem fylgiskjal I við reglugerð þessa.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 56. gr. laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018 og öðlast þegar gildi.
Dómsmálaráðuneytinu, 18. júlí 2023.
Guðrún Hafsteinsdóttir.
Haukur Guðmundsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.