Fara beint í efnið

Prentað þann 25. nóv. 2024

Breytingareglugerð

776/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1263/2015, um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 920/2013 og tilmæli framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 473/2013 frá 24. september 2013 um tilnefningu á og eftirlit með tilkynntum aðilum (sem annast samræmismat fyrir ákveðna vöruflokka sem geta haft mikil áhrif á öryggishagsmuni almennings).

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Eftirfarandi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 10 í kafla XXX (lækningatæki) í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 89/2020 frá 18. júní 2020, um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun), skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/666 frá 18. maí 2020 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 920/2013 að því er varðar endurnýjun tilnefninga og eftirlit með tilkynntum aðilum og vöktun á þeim.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/666 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 62/2020, 24. september 2020, bls. 230.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 1. mgr. 4. gr. laga um faggildingu o.fl., nr. 24/2006, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 24. júní 2020.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Heimir Skarphéðinsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.