Fara beint í efnið

Prentað þann 4. des. 2024

Breytingareglugerð

764/2024

Reglugerð um (10.) breytingu á reglugerð nr. 507/2020 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1793 um tímabundna aukningu á opinberu eftirliti og neyðarráðstafanir sem gilda um komu tiltekinna vara frá tilteknum þriðju löndum.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 10. tl., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1662 frá 11. júní 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/1793 um tímabundna aukningu á opinberu eftirliti og neyðarráðstafanir sem gilda um komu tiltekinna vara frá tilteknum þriðju löndum inn í Sambandið, um framkvæmd reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 og (EB) nr. 178/2002.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1662 er birt á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 27/2024.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 19. júní 2024.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.

Svava Pétursdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.