Prentað þann 13. apríl 2025
764/2008
Reglugerð um sameiningu heilbrigðisstofnana.
1. gr.
Með reglugerð þessari eru eftirtaldar heilbrigðisstofnanir sameinaðar og tekur sameiningin gildi 1. janúar 2009:
- Undir nafninu Heilbrigðisstofnun Vesturlands sameinast eftirtaldar stofnanir frá 1. janúar 2010:
Heilbrigðisstofnunin Akranesi.
St. Franciskusspítali Stykkishólmi.
Heilsugæslustöðin Búðardal.
Heilsugæslustöðin Borgarnesi.
Heilsugæslustöðin Grundarfirði.
Heilsugæslustöðin Ólafsvík.
Heilbrigðisstofnunin Hólmavík.
Heilbrigðisstofnunin Hvammstanga. - Undir nafninu Heilbrigðisstofnun Vestfjarða sameinast eftirtaldar stofnanir:
Heilbrigðisstofnunin Ísafjarðarbæ.
Heilbrigðisstofnunin Bolungarvík. - Undir nafninu Heilbrigðisstofnunin Blönduósi og Sauðárkróki sameinast eftirtaldar stofnanir:
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi.
Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki. - Undir nafninu Heilbrigðisstofnunin Dalvíkur- og Fjallabyggð sameinast eftirtaldar stofnanir:
Heilbrigðisstofnunin Siglufirði.
Heilsugæslustöðin Dalvík.
Heilsugæslustöðin Ólafsfirði.
2. gr.
Ákvæði b-liðar 1. gr. reglugerðar þessarar, sem sett er með stoð í 3. málsl. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2009 en ákvæði a-, c- og d-liðar öðlast gildi 1. júlí 2009.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.