Prentað þann 7. apríl 2025
760/2022
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 381/2019 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:
Eftirtaldar reglugerðir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins skulu gilda hér á landi með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2021 frá 19. mars 2021 sem birt er sem fylgiskjal 1 með reglugerð þessari:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/236 frá 21. desember 2020 um breytingu á tæknilegum stöðlum sem mælt er fyrir um í framseldri reglugerð (ESB) 2016/2251 að því er varðar tímasetninguna þegar tilteknar verklagsreglur um áhættustýringu taka gildi að því er varðar skipti á tryggingum, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 34/2022 frá 25. maí 2022, bls. 13-17.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/237 frá 21. desember 2020 um breytingu á tæknilegum eftirlitsstöðlum sem mælt er fyrir um í framseldum reglugerðum (ESB) 2015/2205, (ESB) 2016/592 og (ESB) 2016/1178 að því er varðar daginn þegar stöðustofnunarskyldan tekur gildi fyrir tilteknar gerðir samninga. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 34/2022 frá 25. maí 2022, bls. 18-21.
2. gr.
Við reglugerðina bætist fylgiskjal sem er birt með reglugerð þessari.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 15. gr. laga nr. 15/2018, um afleiðuviðskipti, miðlæga mótaðila og afleiðuviðskiptaskrár, og öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 10. júní 2022.
F. h. r.
Guðrún Þorleifsdóttir.
Guðmundur Kári Kárason.
Fylgiskal
(Sjá PDF-skjal)
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.