Fara beint í efnið
Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 23. des. 2024

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 21. ágúst 2017 – 13. okt. 2018 Sjá núgildandi

735/2017

Reglugerð um nýfæði.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 126/2017, frá 7. júlí 2017, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 frá 25. nóvember 2015 um nýfæði, um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1169/2011 og um niðurfellingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 258/97 og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1852/2001. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 48, frá 3. ágúst 2017, bls. 274.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.

Reglugerðin öðlast þegar gildi og á sama tíma fellur reglugerð nr. 990/2015 úr gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 17. ágúst 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.