Prentað þann 22. nóv. 2024
734/2015
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 619/2008, um bann við markaðssetningu, dreifingu og sölu kveikjara án barnalæsingar og kveikjara með óhefðbundið útlit sem höfða sérstaklega til barna, með síðari breytingum.
1. gr.
8. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Reglugerð þessi er sett á grundvelli 10. gr. laga nr. 134/1995, um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, með síðari breytingum, og innleiðir ákvarðanir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2006/502/EB, 2007/231/EB, 2008/322/EB, 2009/298/EB, 2010/157/ESB, 2011/176/ESB, 2012/53/ESB, 2013/1/ESB, 2014/61/ESB og 2015/249/ESB. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett á grundvelli 10. gr. laga nr. 134/1995, um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 7. ágúst 2015.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Björn Freyr Björnsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.