Fara beint í efnið

Prentað þann 22. júlí 2024

Stofnreglugerð

733/2024

Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/369 að því er varðar nauðsynlegar tækniforskriftir og verklagsreglur fyrir samtengingarkerfi miðlægra skráa sem um getur í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849.

1. gr.

Eftirtalin framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 23be í IX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 17/2023, frá 3. febrúar 2023, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IX. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/369 frá 1. mars 2021 um að koma á nauðsynlegum tækniforskriftum og verklagsreglum fyrir samtengingarkerfi miðlægra skráa sem um getur í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2021/369 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB, nr. 73/2023, 12. október 2023, bls. 248-254.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett er með stoð í d-lið 19. gr. laga nr. 82/2019 um skráningu raunverulegra eigenda, og öðlast þegar gildi.

Menningar- og viðskiptaráðuneytinu, 7. júní 2024.

F. h. r.

Ingvi Már Pálsson.

Sigurbjörg Guðmundsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.