Prentað þann 18. des. 2024
720/2024
Reglugerð um (7.) breytingu á reglugerð nr. 1130/2012 um menntun, réttindi og skyldur sálfræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi.
1. gr.
1. málsl. ákvæðis til bráðabirgða við reglugerðina hljóðar svo:
Um þá sem ljúka framhaldsnámi, skv. 1. málsl. 1. mgr. 3. gr. fyrir 1. júlí 2026, gildir ekki ákvæði 2. málsl. 1. mgr. 3. gr.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5. og 30. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012 og 6. gr. laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 10. júní 2024.
Willum Þór Þórsson.
Ásthildur Knútsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.