Prentað þann 25. nóv. 2024
717/2024
Reglugerð um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Malí, nr. 381/2018.
1. gr. Almenn ákvæði.
2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktun er að ræða, hverjar þær þvingunaraðgerðir sem koma eiga til framkvæmda eru og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023.
2. gr. Þvingunaraðgerðir
Eftirfarandi bætist við 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Malí nr. 381/2018:
1.9 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/1204 frá 22. apríl 2024 um breytingu á ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/1775 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 1.9. | |
2.7 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2024/1205 frá 22. apríl 2024 um breytingu á reglugerð ráðsins (ESB) 2017/1770 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 2.7. |
2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 68/2023.
3. gr. Viðurlög.
6. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna skal sæta viðurlögum skv. 37. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.
4. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 29. maí 2024.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.