Prentað þann 22. des. 2024
708/2023
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 280/2021 um starfsemi Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað ártalanna "2021 og 2022" kemur: 2023 og 2024.
- Í stað fjárhæðarinnar "kr. 364 milljónum" kemur: 415 milljónum.
2. gr.
Í stað ártalsins "2022" í 1. málsl. 3. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar kemur: 2024.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 4. mgr. 13. gr. b laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, sbr. lög nr. 9/2018, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 14. júní 2023.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Hermann Sæmundsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.