Prentað þann 14. apríl 2025
Brottfallin reglugerð felld brott 26. júní 2021
698/2021
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 691/2021, um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglugerðarinnar:
- Í staðinn fyrir 150 í 3. málsl. 1. mgr. kemur: 300.
- Við 1. mgr. 5. gr. bætist nýr málsliður svohljóðandi: Sömu skilyrði gilda um skráningu gesta á sitjandi viðburðum, t.a.m. skulu gestir skráðir í sæti á íþróttaviðburðum.
- Við 5. gr. bætist ný málsgrein svohljóðandi: Íþrótta- og ólympíusamband Íslands setur sérsamböndum reglur um sóttvarnir og um framkvæmd æfinga og keppni í sínum greinum í samvinnu við sóttvarnalækni. Í íþróttum sem ekki tilheyra Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands skal setja leiðbeiningar eða fylgja sömu leiðbeiningum og sambærilegar íþróttir innan sambandsins.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, tekur gildi 15. júní 2021.
Heilbrigðisráðuneytinu, 14. júní 2021.
F. h. r.
Ásthildur Knútsdóttir.
Guðlaug Einarsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.