Prentað þann 23. nóv. 2024
697/2019
Reglugerð um (15.) breytingu á reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur.
1. gr.
Við 7. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1847 frá 26. nóvember 2018 um breytingu á V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 123/2019 frá 8. maí 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 44 frá 29. maí 2019, bls. 154-156.
2. gr.
Reglugerðin er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1847 frá 26. nóvember 2018 um breytingu á V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 um snyrtivörur.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í c-lið 7. tölulið 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 9. júlí 2019.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.