Prentað þann 22. nóv. 2024
Breytingareglugerð
695/2021
Reglugerð um breytingu á reglugerð um flugvernd, nr. 750/2016.
1. gr.
Við 1. mgr. 53. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/255 frá 18. febrúar 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1998 um ítarlegar ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 123/2021 frá 19. mars 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37 frá 27. maí 2021, bls. 111.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 70. gr. d., sbr. 145. gr. laga um loftferðir, nr. 60/1998, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 31. maí 2021.
F. h. r.
Ólafur Kr. Hjörleifsson.
Ástríður Scheving Thorsteinsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.