Fara beint í efnið

Prentað þann 23. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 7. ágúst 2020

695/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð um för yfir landamæri, nr. 866/2017.

1. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Frá og með 15. júlí 2020 er útlendingum, sem hvorki eru EES- né EFTA-borgarar, eða ríkisborgarar Andorra, Mónakó, San Marino, eða Vatikansins, óheimilt að koma til landsins óháð því hvort þeir uppfylli skilyrði 5. gr., auk annarra skilyrða sem fram koma í 106. gr. útlendingalaga.

Ákvæði 1. mgr. á ekki við um útlendinga sem hafa gilt dvalarleyfi eða annars konar dvalar- eða búseturétt hér á landi eða í öðru EES- eða EFTA-ríki eða í Andorra, Mónakó, San Marino, eða Vatikaninu og aðstandendur þeirra skv. lögum um útlendinga.

Ákvæði 1. mgr. á ekki við um aðstandendur íslenskra ríkisborgara, EES- eða EFTA-borgara eða ríkisborgara Andorra, Mónakó, San Marino, eða Vatikansins, skv. lögum um útlendinga.

Ákvæði 1. mgr. á ekki við um útlendinga sem hafa sannanlega búsetu í einu af þeim ríkjum sem upp eru talin í viðauka við reglugerð þessa og eru að koma til landsins frá viðkomandi ríki.

Ákvæði 1. mgr. á ekki heldur við um útlendinga sem koma til landsins vegna brýnna erindagjörða, þ. á m. eftirtalda aðila:

  1. Farþega í tengiflugi.
  2. Starfsfólk á sviði heilbrigðisþjónustu og öldrunarþjónustu.
  3. Starfsfólk sem sinnir flutningum á vöru og þjónustu.
  4. Einstaklinga sem hafa þörf á alþjóðlegri vernd.
  5. Einstaklinga sem þurfa að ferðast vegna brýnna aðstæðna í fjölskyldu sinni.
  6. Diplómata, starfsmenn alþjóðastofnana, meðlimi herliðs og starfsmenn sem sinna mannúðaraðstoð.
  7. Námsmenn.
  8. Einstaklinga sem þurfa nauðsynlega að ferðast vegna starfa sem teljast efnahagslega mikilvæg og störf þeirra geta ekki verið framkvæmd síðar eða erlendis.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 18. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Við gildistöku reglugerðar þessarar fellur úr gildi reglugerð nr. 655/2020.

Dómsmálaráðuneytinu, 10. júlí 2020.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Ragna Bjarnadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.