Prentað þann 14. apríl 2025
692/2019
Reglugerð um bann við veiðum á sæbjúgum í utanverðum Breiðafirði.
1. gr.
Frá og með 20. júlí 2019 eru allar veiðar á sæbjúgum óheimilar á veiðisvæði í utanverðum Breiðafirði sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:
- 64°50,00´N - 23°12,00´V
- 64°50,00´N - 25°00,00´V
- 65°30,00´N - 25°00,00´V
- 65°30,00´N - 23°38,45´V
- 65°26,85´N - 23°38,75´V
- 65°00,00´N - 23°12,00´V
- 64°50,00´N - 23°12,00´V
2. gr.
Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 31. ágúst 2019.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 19. júlí 2019.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Erna Jónsdóttir.
Guðmundur Jóhannesson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.