Prentað þann 30. mars 2026
689/2025
Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 830/2022 um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.
1. gr.
Hvar sem orðið "Umhverfisstofnun" í hvers konar beygingarfalli, kemur fyrir í reglugerðinni, kemur í viðeigandi beygingarfalli: Umhverfis- og orkustofnun.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á viðauka reglugerðarinnar.
Eftirfarandi starfsemi er bætt við í stafrófsröð:
Veitingastaður.
3. gr. Lagastoð, gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. mgr. 8. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. og 1. og 20. tölul. 5. gr. laganna. Reglugerðin er sett að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga um hlutverk heilbrigðisnefnda við framkvæmd reglugerðar þessarar.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 20. júní 2025.
Jóhann Páll Jóhannsson.
Björn Helgi Barkarson.
B deild - Útgáfud.: 25. júní 2025
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.