Prentað þann 20. des. 2025
Stofnreglugerð
672/2020
Reglugerð um leyfilegan heildarafla á fiskveiðiárinu 2020/2021.
1. gr.
Fyrir fiskveiðiárið 1. september 2020 til 31. ágúst 2021 er leyfilegur heildarafli sem hér segir:
| Tegund | Tonn |
| Blálanga | 406 |
| Djúpkarfi | 12.384 |
| Grálúða | 13.271 |
| Gullkarfi | 34.379 |
| Gulllax | 8.729 |
| Hlýri | 314 |
| Humar | 0 |
| Hörpudiskur | 93 |
| Íslensk sumargotssíld | 35.490 |
| Keila | 1.429 |
| Langa | 4.430 |
| Langlúra | 854 |
| Litli karfi | 684 |
| Sandkoli | 236 |
| Skarkoli | 7.037 |
| Skrápflúra | 15 |
| Skötuselur | 503 |
| Steinbítur | 8.761 |
| Ufsi | 78.344 |
| Úthafsrækja | 0 |
| Ýsa | 44.419 |
| Þorskur | 254.273 |
| Þykkvalúra/Sólkoli | 1.073 |
2. gr.
Reglugerð þessi er sett skv. 3. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 2. júlí 2020.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Jóhann Guðmundsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.