Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Eldri útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 27. júní 2014 – 8. nóv. 2018 Sjá núgildandi
Sýnir breytingar gerðar 27. júní 2014 af rg.nr. 599/2014

657/2009

Reglugerð um gerð og búnað grunnskólahúsnæðis og skólalóða.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi tekur til aðstöðu, búnaðar, slysavarna og öryggismála í grunnskólahúsnæði og á skólalóðum á vegum sveitarfélaga og annarra rekstraraðila.

2. gr. Ábyrgð og samráð.

Sveitarfélög annast undirbúning og gerð skólamannvirkja á þeirra vegum í samráði við skólanefnd og skólaráð. Stofnkostnaður ásamt kostnaði við viðhald skólahúsnæðis og endurnýjun og viðhald búnaðar þess greiðist af hlutaðeigandi sveitarfélagi. Við hönnun, byggingu og endurnýjun skólahúsnæðis skulu sveitarfélög ennfremur hafa samráð við hagsmunaaðila skólasamfélagsins og aðila í grenndarsamfélagi, svo sem foreldra, nemenda, fulltrúa íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafélaga, ungmennaráða og aðila úr atvinnulífinu.

Þegar um er að ræða rekstur grunnskóla á vegum annarra aðila en sveitarfélaga er undirbúningur, gerð nýs skólahúsnæðis, viðhald þess og endurnýjun og viðhald búnaðar á ábyrgð og kostnað hlutaðeigandi rekstraraðila.

3. gr. Skólahúsnæði, skólalóð og búnaður.

Húsnæði og skólalóðir skulu uppfylla kröfur laga nr. 91/2008 um grunnskóla, reglugerðar þessarar, aðalnámskrár grunnskóla og laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustu og öryggi á vinnustöðum. Einnig ber að uppfylla kröfur heilbrigðis- og byggingaryfirvalda til slíkra mannvirkja. Húsnæði, skólalóð og allur aðbúnaður þarf að vera þannig úr garði gerður að unnt sé að ná markmiðum laga um grunnskóla og aðalnámskrá grunnskóla. Er þar sérstaklega átt við að nemendum og starfsfólki skóla sé tryggt öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi sem skapar öryggi og vellíðan þeirra svo sem varðandi hentugan húsbúnað, hljóðvist og lýsingu, loftgæði og loftræstingu, fjölbreytni í náms- og leikaðstöðu og annan búnað.

4. gr. Hönnun.

Við hönnun nýs skólahúsnæðis skal taka mið af áætluðum hámarksfjölda nemenda í skólanum. Við skipulag einstakra vinnurýma skal m.a. taka mið af fjölbreyttum kennsluháttum og sveigjanleika í kennslufyrirkomulagi svo sem hvað varðar samkennslu árganga. Sérstaklega skal þess gætt að nægilegt rými sé fyrir hvern nemanda svo hann geti sinnt námi sínu. Þannig skal vinnurými að jafnaði vera a.m.k. 60 fermetrar fyrir 22 - 28 nemendur, 52 fermetrar fyrir 18 - 21 nemanda, 44 fermetrar fyrir 13 - 17 nemendur, 36 fermetrar fyrir 12 nemendur og aldrei minni en 16 fermetrar.

5. gr. Lágmarksaðstaða.

Til nauðsynlegrar lágmarksaðstöðu í grunnskólum telst:

  1. vinnurými og viðeigandi aðstaða og búnaður fyrir nemendur til kennslu í öllum námsgreinum og námssviðum grunnskóla samkvæmt lögum um grunnskóla og aðalnámskrá grunnskóla,
  2. vinnurými fyrir skólastjóra, kennara og annað starfsfólk,
  3. aðstaða fyrir félagsstarf nemenda og nemendafélög,
  4. aðstaða fyrir nemendur til að neyta málsverða og til viðveru utan kennslustunda,
  5. rými og búnaður vegna sérfræðiþjónustu við nemendur,
  6. rými fyrir skólaheilsugæslu, eftir því sem við á,
  7. aðgengi og aðstaða fyrir fatlaða,
  8. afmörkuð og skipulögð skólalóð sem gefur fjölbreytt tækifæri til leikja og annarrar útivistar.

Þar sem henta þykir er sveitarstjórn heimilt að ákveða að fleiri en einn skóli fái afnot af húsnæði, sem fyrir er í sveitarfélaginu, vegna íþrótta- og/eða sundkennslu eða annarrar sérgreinakennslu.

6. gr. Samningar um afnot af húsnæði.

Sveitarstjórnum er heimilt að gera samning við önnur sveitarfélög og við rekstraraðila grunnskóla um afnot af húsnæði, t.d. vegna íþrótta- og/eða sundkennslu eða annarrar sérgreinakennslu.

7. gr. Öryggi og slysavarnir.

Húsnæði, lóð, aðstaða, búnaður og öll starfsemi sem börn taka þátt í á vegum grunnskóla skal miðast við að öryggi nemenda sé tryggt. Sérstaklega skal hugað að öryggiskröfum í verkmenntastofum um vélar, tæknilegan búnað, efnisnotkun, loftgæði og loftræstingu og aðgengi að fyrstu hjálp.

Nemandi er á ábyrgð skólans meðan á daglegum starfstíma skólans stendur, þegar hann tekur þátt í skipulögðu skólastarfi innan skólans, á skólalóð eða í ferðum á vegum skólans.

8. gr. Handbók um öryggi nemenda og slysavarnir í skólum.

SveitarstjórnRáðuneytið, í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, skal útbúa rafræna handbók fyrir starfsfólk grunnskóla með leiðbeinandi reglum um öryggi og velferð nemenda og slysavarnir í grunnskólum. LeiðbeiningarSkal þessarhandbókin skuluendurskoðuð grundvallaðarreglulega.

 Handbókin skal grundvölluð á gildandi lögum og reglugerðum um starfsemi grunnskóla, lögum og reglugerðum um öryggis-, skipulags- og byggingarmál og samræmdum starfsleyfisskilyrðum fyrir grunnskóla, sbr. lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum. LeiðbeiningarEinnig þessarskal skuluhöfð staðfestarhliðsjón af sveitarstjórnreglugerð um vélar og tæknilegan búnað og vinnuumhverfisvísum Vinnueftirlits ríkisins, eftir því sem jafnframt skal sjá um að þær séu aðgengilegar almenningivið á vef skólans eða sveitarfélagsins og kynntar í skólasamfélaginu.

SambandiHandbókin íslenskraskal sveitarfélagavera aðgengileg opinberlega og menntamálaráðuneytiber berskólastjóri ábyrgð ámótahún leiðbeiningar umsérstaklega gerðkynnt slíkraröllu handbókarstarfsfólki skóla og öðrum aðilum í skólasamfélaginu.

9. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 20. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi frá sama tíma reglugerð nr. 519/1996 um lágmarksbúnað grunnskóla.

 Menntamálaráðuneytinu, 3. júlí 2009. 

 Katrín Jakobsdóttir. 

 Baldur Guðlaugsson. 

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.