Prentað þann 22. nóv. 2024
649/2018
Reglugerð um breytingu á reglugerð um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 1277/2016.
1. gr.
2. málsl. 4. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
2. gr.
Orðin "en með auknum ráðstöfunum skv. reglum Mannvirkjastofnunar þar að lútandi" í 4. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar falla brott.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað orðsins "ferðamanna" í 1. málsl. 1. mgr. kemur: gesta
- Orðin "en með auknum ráðstöfunum skv. reglum Mannvirkjastofnunar þar að lútandi" í 2. mgr. falla brott.
4. gr.
4. mgr. 13. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Einstaklingur sem býður heimagistingu ábyrgist að íbúðarhúsnæðið uppfylli viðeigandi kröfur laga og reglugerða um brunavarnir. Reykskynjarar, eldvarnarteppi og slökkvitæki skulu vera í íbúðinni. Uppdráttur sem sýnir útgönguleiðir ásamt staðsetningu brunavarnarbúnaðar skal festur á vegg við eða á inngangshurð í öllum gistirýmum.
5. gr.
Reglugerð þessi sem sett er með stoð í lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007 með síðari breytingum, tekur þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. júní 2018.
F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,
Sigrún Brynja Einarsdóttir.
Brynhildur Pálmarsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.