Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

649/2017

Reglugerð um (8.) breytingu á reglugerð nr. 822/2010 um flutning úrgangs á milli landa.

1. gr.

Á eftir r-lið 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar kemur nýr stafliður svohljóðandi:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 660/2014 frá 15. maí 2014 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1013/2006 um tilflutning úrgangs, sem vísað er til í tölulið 32c, V. kafla XX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 230/2015 frá 25. september 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63 frá 15. október 2015, 2015/EES/63/75, bls. 1969-1976.

2. gr. Innleiðing.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 660/2014 frá 15. maí 2014 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1013/2006 um tilflutning úrgangs.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 43. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, og öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 3. júlí 2017.

Björt Ólafsdóttir.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.