Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Sýna breytingar
Næsta útgáfa

Prentað þann 27. apríl 2025

Upprunaleg útgáfa reglugerðar gilti á tímabilinu 10. júlí 2013 – 25. jan. 2018 Sjá núgildandi

643/2013

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 547/2012 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun vatnsdælna.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir lið 26g í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 79/2013, frá 3. maí 2013, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 547 frá 25. júní 2012 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB að því er varðar kröfur varðandi visthönnun vatnsdælna.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 547/2012 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28/2013, 16. maí 2013, bls. 462.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 13. gr. laga nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem notar orku, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. júní 2013.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Ólafur Egill Jónsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.