Fara beint í efnið

Prentað þann 3. júlí 2024

Breytingareglugerð

642/2024

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 474/2017 um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi.

1. gr.

Við 20. gr. reglugerðarinnar bætast við nýir stafliðir, t- og u-liður, sem verða svohljóðandi:

  1. Reglugerð ráðsins (EB) 569/2008 frá 12. júní 2008 um breytingu á reglugerð nr. 11 um afnám mismununar á flutningsgjöldum og -skilmálum í tengslum við framkvæmd 3. mgr. 79. gr. stofnsáttmála Efnahagsbandalags Evrópu, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 285/2023, 27. október 2023, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 83 frá 16. nóvember 2023, bls. 503.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2179 frá 9. desember 2021 um aðgerðir opinbera viðmótsins sem er tengt við upplýsingakerfið fyrir innri markaðinn varðandi útsendingu ökumanna á sviði flutninga á vegum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 287/2023, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 85 frá 23. nóvember 2023, bls. 137.

2. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 34. gr. laga um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017, öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 29. maí 2024.

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Nína Guðríður Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.