Prentað þann 22. des. 2024
Breytingareglugerð
641/2024
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1138/2007 um stofnun Siglingaöryggisstofnunar Evrópu.
1. gr.
Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi stafliður:
- Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 100/2013 frá 15. janúar 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1406/2002 um stofnun Siglingaöryggisstofnunar Evrópu, sem vísað er til í XIII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 327/2023 frá 8. desember 2023. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 100/2013 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 11 frá 1. febrúar 2024, bls. 468-478 og verður hluti af reglugerð þessari.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 2. mgr. 40. skipalaga nr. 66/2021, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 29. maí 2024.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
Vala Hrönn Viggósdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.