Prentað þann 9. júlí 2025
638/2025
Um breytingu á reglugerð um þráðlausan fjarskiptabúnað, nr. 944/2019. REGLUGERÐ um breytingu á reglugerð um þráðlausan fjarskiptabúnað, nr. 944/2019.
1. gr.
Við 2. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, sem verða 6. og 7. töluliður, svohljóðandi:
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2444 frá 20. júlí 2023 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2022/30 að því er varðar þann dag sem grunnkröfur fyrir þráðlausan fjarskiptabúnað koma til framkvæmda og um leiðréttingu á þeirri reglugerð, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 25/2025, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 17, 20. mars 2025, bls. 607-608.
Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1717 frá 27. júní 2023 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/53/ESB að því er varðar tækniforskriftir fyrir hleðslutengi og hleðslusamskiptareglur fyrir alla flokka eða tegundir þráðlauss fjarskiptabúnaðar sem hægt er að endurhlaða með hleðslusnúru, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 24/2025, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 17, 20. mars 2025, bls. 604-606.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 33. gr., sbr. 107. gr. laga um fjarskipti, nr. 70/2022, og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 26. maí 2025.
Eyjólfur Ármannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 13. júní 2025
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.